Mjallhvít og dvergarnir!!
Naglasíðan hennar Jónu
Við stelpurnar
29.06.2007 15:23:41 / Purkur

Grilldagurinn

Fyrir börnin erum við með trampólín, ekki með öryggisneti, litla buslulaug, reyndar bara með köldu vatni. Ég finn ekki tjaldið hans Krissa, á eftir að gá á einum stað. Ég er ekki með neitt annað fyrir börnin til að leika sér að. Það eru reyndar hestar upp frá og hægt að teyma undir krökkunum.

Ég er alla vega búin að baka súkkulaðiköku. Svo enginn annar gera það.

Hlakka til að sjá ykkur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 14:58:47 / Teitur

Sumardagurinn

Jæja nú líður að sumardeginum okkar8) nk. laugardag.

Mæting verður um 12-12:30 uppí bústaðinn við byrjum á að grilla okkur hádegismat , svo höfum við bara gaman af förum í leiki og svoleiðis og njótum okkar í sveitasælunni, endum svo á kaffi og meðlæti.

Endilega taka með okkur gesti til að það verði bara meira fjör.

Allir komi með handa sér og sínum til að grilla og drykki ( ég skal koma með tómatsósu og steiktan lauk) , ekki væri vitlaust að koma með pappadiska og servéttur.

Með kaffið eigum við ekki að deila þessu niður á okkur svo að við verðum ekki með of mikið af öllu. Endilega komið með hugmyndir hvað þið viljið koma með.

Svo er bara að taka eitthvað smá dót með fyrir krakkana.

Kveðja Teitur Skemmtanastjóri:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 17:30:37 / Mjallhvít

...

Stelpur ég er að fara í skírn 30. júní... þannig að við komumst ekki í fjölskylduhittininginn:(


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 15:44:37 / Purkur

Nóg að gera í sveitinni

Ég er bara búin að vera upp í bústað í meira en viku. Ég hafði bara hugsað mér að vera þar áfram. Við kíkjum bara í bæinn til að þvo fólk og föt. Ég nota þá tækifærið og kíki aðeins á netið meðan við bíðum eftir þvottavélinni.

Annars var ég í túristaleik í vikunni. Eins og ég held að ég hafi verið búin að segja ykkur þá eru nokkrir norsarar á landinu. Ég var búin að lofa að sýna þeim hesta og skreppa svo inn í Þórsmörk því það var rétt hjá hrossunum. Ég hélt nú ekki að það væri mikið mál. Svo stutt að skjótast inn í mörkina, bara nokkrar lækjarsprænur á leiðinni og svo náttla Krossá. Við myndum bara sjá til hvort við legðum í hana þegar að kæmi. Ég hafði hins vegar ekki komið inn í Þórsmörk frá því að ég fór með skólanum forðum daga, fyrir svona circa 15 árum!!! Álfur ætti að muna eftir þeirri ferð líka.  Vegurinn var ekki neitt sérstaklega glæsilegur og var það bara annar gírinn sem gilti meiri hlutan af leiðinni. Þannig að þessi stutta leið var frekar seinfarin. Síðan þegar var komið að Krossánni var skálavörðurinn að lóðsa annan bíl yfir ánna á traktor, svo við bara skelltum okkur á eftir honum til baka og það gekk svona líka rosalega vel. Norðmennirnir voru þvílíkt ánægðir meðan ferðina. Sáu skriðjökul í návígi, frábært útsýni og höfðu aldrei farið yfir svona stóra á, á bíl áður. Litli burrinn minn sannaði heldur betur ágæti sitt í þessum "ófærum" og ég held að annað eins hafi ekki verið lagt á hann síðan saumklúbburinn var forðum daga þegar allt var ófært í Reykjavík. Einhverjir ættu að muna eftir því ferðalagi um borgina þvera og endilanga sem endaði svo í Garðabæ.

Annars er Purkurinn bara hress og kátur, og hlakkar til að sjá sem flesta 30. júní.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 09:14:07 / Hnerrir

máli,máli,máli...

Mikið rosalega er veðrið búið að vera gott sl. daga og ég er búin að vera rosalega dugleg og búin að mála pallinn minn alveg 2 umferðir en ég get svo svarið það að ég hugsa að ég fari eina í viðbót, það veitir sko ekkert af því ! og já ég er ekkert smá ánægð með litinn hann er svona fallega brúnn með smá rauðu í (heitir Rauð fura) og ég ætla að hafa húsið í svipuðum blæ, já ég er loksins búin að ákveða litinn 8) svo ætlum við "hjónin" að mála húsið um helgina það er spáð svo rosa góðu,:D sól,sól skín á mig.... er ekki einhverjum sem finnst gaman að mála ?he,he... nei ég veit ;) að vísu fannst mér rosa stuð að mála pallinn :haha: mússíkin í botni, gott veður, allir að vinna og svo sá ég svo geðveikt mikið eftir mig, þetta breyttist svo mikið og ég er sko ekki í vafa að það verði jafn gaman og reyndar mikklu skemmtilegra um helgina því að við ætlum að breyta um litinn á húsinu og þá sér maður svo mikinn mun :P  Hei Bergrós er 4 ra og hálfs mánaða og hún er farin að bakka 8| ekkert smá sterk í höndonum (eins og mamma sín) en hún lá á maganum í gær og bakkaði heila 3 metra takk fyrir :) Varð að monnta mig :haha:

 Jæja :) Ekki veit ég alveg ástæðuna fyrir því að vera að skrifa hérna ? það er bara akkúrat 0 hreyfning :cry: æ, mig bara langaði til að skrifa eitthvað :|

bæjó í bili kv. Hnerrir


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 10:45:15 / Kúturinn

Ferðalag:o)

Jæja ég fór í útilegu um helgina og við fórum á Dæli sem er ekki langt frá Blönduósi og ég mæli með þessum stað. Reyndar er tjaldsvæðið svolítið bert og ekki mikið af trjám en aðstaðan allveg til fyrirmyndar og fengum allveg æðislegt veður, sól og aðvitað er ég brennd á nefi og enni og rosa gaman. Sunnudeginum eyddum við í að skoða Vatnsnesið held ég að það heiti og var skoðað Borgarvirki og Hvítserk og maður bara skilur ekki af hverju ég var ekki búin að skoða þessa staði fyrr því mikið er fallegt þarna.

Kveðja Kútur


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 14:29:44 / Hnerrir

TIL HAMINGJU MEÐ STRÁKINN TEITUR :)

Innilega til hamingju með Magnús Breka :P vonadi verður dagurinn góður :!:  Við kíkjum á ykkur næst þegar við verðum í bænum :) ekki spurning ! það verður mjög líklega á föstudaginn næsta, vonadi verðið þið bara heima þá ;) 

Kveðja frá B-fjölskyldunni hinni einu sönnu :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 10:46:57 / Teitur

sumardagurinn

Hæ hæ

Talaði við Mjallhvíti ,hún sagði að það væri komin uppástunga með dag´fyrir sumarsprellið okkar þann 30 júní nk. að flestir gætu komið þá.

Við skulum plana þetta betur í næsta saumó.

Kv. Teitur sem á 6 vikur eftir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 10:05:35 / Kúturinn

Saumó!!

Jæja ég ætla að hafa saumó föstudaginn 15´júní kl 20:30

Hlakka til að sjá ykkur:o


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 12:27:01 / Hnerrir

??

Hæ,hæ Allt ágætt héðan fyrir utan smá kvef, ég Bjarki og Bergrós erum öll svona hálf kvefuð :S  Frekar þreytandi að vera svona hálf slappur :|  En ég var að spá átti ekki að vera saumó sl föstudag ? eða er honum frestað eitthvað eða er ég eitthvað að rugla?

 Hnerrir........aaaaaaaaaaaattttttjjúúúú, he,he..


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 16:18:26 / Kúturinn

Týndir???

          Jæja hvar eru hinir dvergarnir. Eru allir týndir eða hvað?

   Kannski bara í útlöndum eða bara bissí. Mig langar að heyra frá ykkur líka:o)


» 2 hafa sagt sína skoðun


Síðast inni
Ég var síðast inni þann 29 apríl
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan